Across
- 4. Lítil tjörn myndaðist við þennan gíg í jarðskjálftahrinu.
- 5. Hvað kallast það þegar Mývatn gruggast vegna sýanóbaktería?
- 7. Hvað heitir íþróttafélagið í Mývatnssveit?
- 9. Fyrr á öldum var brennisteinn unnin úr jörðu á tilteknum stað og notaður í púður.
- 10. Hvað heitir handverksfélagið í Mývatnssveit?
- 12. til eru tvö afbrigði af bleikju í Mývatni, venjuleg bleikja og ___ ?
- 14. Þetta er heimili íslensku jólasveinanna.
- 15. Um 15km löng gígaröð liggur ofan við Dimmuborgir, hvað heitir hún?
- 17. Við hvaða hitastig frýs Mývatn?
- 18. Hvað er mýventskt nafn fyrir hraundranga?
- 21. Hvaða sprengigíg er hægt að finna í Mývatnssveit?
- 22. Náttröllið í Skessuhala á að hafa skilið bát sinn eftir á þessum stað.
- 25. Þarna var stífla sprengd árið 1970.
- 26. Hvað heitir sundið sem skiptir Ytri og Syðri Flóa?
- 28. Þetta er náttúruvætti með form- og fjölbreyttu stuðlabergi.
- 29. Kristallað rhýólít finnst í miklu magni á þessum stað.
- 32. Þetta er móbergshryggur í fjallahring Mývatnssveitar.
- 33. Hvað heitir hráefni sem unnið var úr botni Mývatns?
Down
- 1. Mývatn hefur að geyma margar eyjar, hólma og sker en hver er stærsta eyjan?
- 2. Samkvæmt þjóðsögu Jóns Árnasonar hefur þessi vera margt um myndum Mývatn að gera.
- 3. Þetta er móbergsstapi í fjallahring Mývatnssveitar.
- 6. Þetta er staðsetning á fyrstu jarðgufuvirkjun á Íslandi.
- 7. Þetta er ljósgult blóm sem gengur einnig undir nafninu Aronsvöndur.
- 8. Þetta er sjaldgæf hraunmyndun sem myndast við gufusprengingar.
- 11. Hvaða fugl er einkennisfugl Mývatnssveitar?
- 13. Þessi lindá rennur undan tugi metra þykkum gjóskulögum frá lokum síðustu ísaldar.
- 16. Þetta bragðast mjög vel með reyktum silung og nóg af smjöri.
- 19. Hvað heitir menningarfélagið í Mývatnssveit
- 20. Þarna var á árum áður stunduð þurrböð.
- 23. Þessi grænþörungur finnst einnig í Japan.
- 24. Hvað heitir megineldstöðin sem er staðsett norður af Mývatni?
- 27. Lengi vel er hægt að dorga í gegnum ís, hvaða tæki er notað til að koma neti undir ís?
- 30. Hvaða klettadrangi gengur út í Mývatn?
- 31. Mikil hitabreyting varð þarna á tímum Kröfluelda.
